Fallega stúlkan okkar á myndinni heitir...
Arney
15 athugasemdir
Þann seytjánda júní næstkomandi verður litla manneskjan skírð.
Ég get ekki beðið eftir því að fara að kalla hana með nafni og hætta að nota þessi skemmtilegu gælunöfn eins og bollubína, snúllfríður, búbbasnúbba, strumpólína.
Búbbasnúbba Strumpólína Hauksdóttir, ekki slæmt![]()
Btw, ég keypti blóm, lifandi blóm, og það er allveg ótrúlegt hvað blóm hafa mikið að segja, þau gera heimilið svo miklu meira kósý. Ég bað samt um blóm sem aular geta átt, svona blómanerdar sem drepa öll blóm, jafnvel kaktus. En því miður þá var ekki til þessháttar blómategund í blómabúðinni þannig að endilega komið nú í heimsókn meðan blómin mín eru lifandi svo þið vitið hvað ég er að tala um![]()
Það kemur ekki annað til greina en að setja mynd af litlu bjútíbollunni minni.
Hverjum er ekki sama þó að Tinky Winky stubbalingur með meiru sé samkynhneigður? Ég held að það sé meira í takt við nútímann en þessar gömlu sögur sem ég ólst við að hlusta eða horfa á og ollu þær mikilli myrkfælni eða ýmsum geðshræring sem ég held að ung börn ættu ekki að þurfa að upplifa.
-úlfurinn át ömmu gömlu og Rauðhettu, veiðimaðurinn skar svo gat á magann á honum fyllti hann af grjóti og henti honum í brunn. Er það bara allt í lagi?
-Hans og Gréta voru sett inn í brennandi bakaraofn af Norn sem ætlaði að elda þau lifandi. Er það allt í lagi?
-Mjallhvít og Þyrnirós voru hataðar af stjúpmæðrum sínum, ...minnir mig, allavega voru einhver kvenbitch sem komu þar við sögu og vildu þessar dömur feigar. Er það allt í lagi?
-Þytur í laufi. Það þarf ekki að hafa mörg orð um þann hrylling, allir á mínum aldri gátu ekki sofið með slökkt ljósið í mörg ár eftir að hafa horft á þennan djöfuls hrylling, en af því þetta var flokkað sem barnatími þá sátu allir með hlessingin* í brókinni. Jebb það var líka bara allt í lagi.
-Tommi og Jenni reyndu að drepa hvorn annann oft á mörgu sinnum, oft sá maður höfuð fjúka og fleiri girnilegheit. Lengi vel var þetta aðalbarnaefnið.
Miðað við allt þetta þá held ég að það sé allt í lagi að Tinky Winky sé samkynhneigður, ég efast reyndar stórlega um að áhorfendurnir fatti það rétt eins og að áhorfendur að hinum sögunum gerðu engann greinarmun á því að það væru ævintýri en ekki blákaldur raunveruleikinn.
Hlessingur* niðurgangur, skita skv. íslenskri orðabók M&M
Algert indi pindi þessi dagur í dag, við fjölskyldan fórum saman í picnic, Haukur gerði nestið fyrir fjölskylduna meðan ég tók úr 27 þvottavélum og skrúbbaði krakkana í framan svo hægt væri að rúnta með þau í hina fögru sveit: Lónið.
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki mikið verið þar í gegnum tíðina en ætli við verðum ekki tíðir gestir þar sem það er nú ekki langt að fara í þessa fögru náttúruperlu og eyða góðum stundum.
EN phúff ég hélt ég dræpist, dísús hann Haukur er ótrúlegur bílstjóri, ...og þá er ég ekki að meina góður
þegar hann er að dröslast á familíbílnum svona utanvegar, á tímabili hélt ég í hendina á Tómasi Nóa og var að reyna að grenja ekki, ÉG KALLA NÚ SAMT EKKI ALLT ÖMMU MÍNA EN FOR CRYING OUT LOUD! Sumt kemst maður einfaldlega ekki á fólksbíl og sjitturinn hvað ég var stressuð þegar við bökkuðum niður brekkuna sem við festumst í og það var mjög langt niður ef við hefðum durrað okkur utanvegar, ohh sjitt ég var svooo hrædd, mér finnst þetta ekki enn þá fyndið.
En þetta var fínt, við stoppuðum og Tómas Nói lék sér í læk allann tímann, stóð ofani honum í 2 tíma, góð barnapía
við vorum svo að gera stíflu í lækinn og láta laufblöð vera báta sem durruðu niður strauminn, ....maður gekk í barndóm oh þetta va svo gaman. Fengum okkur snarl og héldum heim á leið, Haukur grillaði meðan Tómas Nói var á þríhjólinu út á svölum og fór fram og til baka aftur og aftur og aftur.
ég er að sofna, ...Haukur er sofnaður í sófanum, best að svífa með honum inní svefninn.
Í dag hefst ég handa við lokaritgerðina, er búin að fá Unu barnapíu sem tekur litlu manneskjuna í 2 klst rölt frá 10-12, vonandi að það gangi allt vel og þá get ég reynt að gera eitthvað í þessari ritgerð.
Er ég að úldna á þessari lokaritgerð?
Lokasvar: Já
Er ég búin með mikið af henni?
Lokasvar:nei, eiginlega bara ekki!
Gangi þér þá bara vel beyglan þín.
sumarhilsen úr Fossvoginum!